Ég er ennþá að vinna í því að setja inn myndirnar, þegar allt er komið þá spái ég í útlitinu.

Undirlag í botninn

Undirlagið er til þess að draga í sig hlandið svo naggrísirnir séu ekki gangandi í því. Þá yrðu þeir mjög skítugir og líklegri til að verða veikir. Margt er í boði sem hentar misvel fyrir dýrin og eigendur. Ég get ekki sagt að ég hafi reynslu af öllum þessum efnum en hef lesið mig til um það og séð eftirfarandi undirlög í boði hér á landi.

Þið ættið endilega að lesa hvað eru kostir og gallar hvers undirlags sem eru í boði. Vegna þess að þótt það sé í boði þá hentar það ekki endilega sem undirlag handa naggrísum


Náttúrulegar afurðir

Sag-Spænir

Invalid Link
Sag-spænir

Sag-spænir eru mjög ódýrt og auðfengið undirlag fyrir búrið þitt sem er mjög rakadrægt. Þú skalt að setja nokkra sentimetra þykkt lag af sagi í botninn á búrinu, ég set í kringum 5-8 cm þykkt. Passaðu þig á ryk-miklu sagi því það ertir viðkvæm lungun á naggrísum. Sagið ætti að vera úr harðviði (t.d. aspen).

ATH: ákveðnar viðartegundir hafa verið dæmdar sérstaklega hættulegar heilsu naggrísa: Sedru-viður (Cedar) og Fura (Pine). Ástæðan eru gufur sem viðurinn losar út í loftið og hafa skaðleg áhrif á öndunarfærin og lifrina. Cedar skaltu alls ekki nota. Furu-spænir eru samt taldar vera nothæfar í vel loftræstu rými, því minni lykt er af spænunum þýðir minna af þessum gufum, en greni er vægara en fura skilst mér.

Það er ekkert að marka ef það stendur „dust-free“ utan á umbúðunum, það er bara spurning um hversu mikið af ryki er í því. Það eru alveg hægt að finna sag sem er nánast rykfrítt en þú ættir að prufa róta í því frekar en að treysta á lýsingarnar utan á pakkanum. Gott ráð er að hafa stórt ílát með loki (eins og tunnu eða plast-kassa) sem þú getur tekið út í garð eða svalirnar til að brjóta niður sagið og losa um það. Þá fer mikið af rykinu út í loftið þegar þú rótar í saginu. Ef þú telur vera of mikið ryk í saginu: prufaðu sag frá öðrum framleiðendum eða stærri pakningar. Mín reynsla er sú að stærri pakkningar hafa oftast minnst ryk í sér.

Ef naggrísinn þinn er mjög viðkvæmur fyrir rykinu, þá viltu örugglega prufa aðrar týpur af undirlagi.

  • Kostir:
    • Spænir eru mjög ódýrt og auðfengið undirlag
    • Mjög rakadrægt
  • Gallar:
    • Stundum of mikið af ryk í saginu sem rykið loðir utan í öllu og getur valdið óþægindum í öndunarfærum
    • Festist auðveldlega í t.d. flísefni og handklæðum
    • Geta leynst flísar í saginu

Sag-kögglar

Þeir eru mjög rakadrægir og draga úr lykt. Margir nota þetta sem rakadrægt undirlag með flísefni ofan á vegna þess að kögglarnir eru óþæginlega harðir undir naggrísanna til að ganga á. En hafðu í huga að þetta undirlag er einstaklega þungt, sérstaklega þegar það hefur blotnað. Þú getur stundum fundið sag-köggla merkta köttum til notkunar í kattarkössum.

  • Kostir:
    • Mjög rakadrægt
    • Dregur úr lykt
    • Hægt að nota með flísefni
  • Gallar:
    • Það er þungt (þyngra þegar blautt)
    • Það er óþæginlega hart fyrir naggrísina til að ganga á
    • mögulegt að sumar týpur köggla leysi frá sér gas sem ertir öndunarfæri naggrísa

Carefresh

Carefresh er pappírs-afurð (wood pulp) sem er mjög létt og lyktareyðandi. Þú skalt setja nokkra sentimetra þykkt lag í botninn undir naggrísina alveg eins og þú myndir gera með sag-spænir. Ég hef ekki prufað carefresh persónulega en það er mjög vinsælt erlendis.

  • Kostir:
    • Mjög létt og mjúkt
    • Mjög rakadrægt
    • Ryklaust
  • Gallar:
    • Ekki ódýrt

Hampur, spænir (Hemp shavings)

Hampur er tegund af Kannabis plöntu sem lengi hefur verið ræktuð vegna trefjanna. Ég hef nýlega tekið eftir þessu til sölu í dýrabúðum, spænirnar sem eru gerðar úr kjarna plöntunnar. Oftast notað undir hesta. Samt skaltu aldrei nota neitt undirlag sem hefur verið verkað með olíum eða öðrum aukaefnum.

  • Kostir:
    • Oftast rykminna en sag, en það þýðir ekki ryklaust
  • Gallar:
    • Oft þá hefur verið viðbætt olíum (t.d. citronella eða eucalyptus) út í hampinn til að halda honum ferskum, en þar sem naggrísir vilja oft narta í undirlagið sitt, þá er sérstaklega eucalyptus eitrað fyrir naggrísi.
    • Oft leynist mikið af hörðum flísum í því. Hamp-spænir væri þess vegna eitt versta undirlag fyrir naggrísi sem eru t.d. nýkomnir úr aðgerð vegna þess það getur stungist í sárin og valdið skaða
    • Festist í hárum á síðhærðum naggrísum

Annað

Handklæði (eða önnur rakadræg teppi)

Handklæði eru mjög sniðugt sem fjölnota undirlag, en það er ósnyrtilegt og óheilbrigt fyrir naggrísinn að standa ofan á hland-blautu undirlaginu því það læsir ekki í sig vökvanum.

  • Kostir:
    • Það er fjölnota: setjið það í þvottinn
    • Oft getur þú fengið notuð handklæði til að nota (þarft þá ekki að kaupa ný)
    • Kostir með flísefni:
      • Naggrísirnir verða aðskildir frá hland-blautu handklæðinu og haldast því þurrir og hreinir
      • Handklæðið helst laust við allt sag/hey (ef þú festir flísefnið vel svo naggrísirnir komist ekki undir það)
      • Auðvelt er að finna hvort handklæðið er „fullt“ með því að leggja lófann ofan á flísefnið: þú finnur þá rakann í gegn
      • Hægt er að skipta bara um handklæði og notað flísefnið lengur út vikuna
      • Getur saumað það fast við flísefnið til að búa til einskonar mottu
  • Gallar:
    • efnið læsir ekki í sig vökvanum og verður því blautt viðkomu
    • Þarft helst að nota tvöfalt lag af því, eða fleirri (veltur á þykkt/gæðum efnis)
    • Sjaldan ódýrt þegar keypt er nýtt (fjárfesting eins og með flísefnið)
    • Þarf að setja í þvottinn reglulega

Flísefni sem "yfirlag"

Flísefni er orðið mjög vinsælt í naggrísa-búrum um allan heim vegna þess að það fer vel með viðkvæmar fætur þeirra, kemur í veg fyrir að þeir standi í eigin hlandi og heldur þeim þess vegna þurrum og hreinum. Flísefnið skal alltaf vera notað með öðru rakadrægu undirlagi sem mun taka í sig hlandið. Handklæði henta rosalega vel sem undirlag með flísefni því það getur farið samferða í þvottavélina og spara þér kaup á einnota undirlagi.En notkun flísefnis hentar ekki öllum vegna þess að þú þarft að nenna að þrífa skítinn ofan af flísnum daglega og skella þessu í þvottavélina reglulega.

  • Kostir:
    • Það aðskilur grísina frá undirlaginu og bleytunni, heldur þeim þurrum og hreinum
    • Fer vel með viðkvæmar fætur naggrísa
    • Er fjölnota og endist lengi: einfaldlega henda því í þvottinn reglulega
    • Getur sparað þér kaup á einnota undirlagi: notaðu handklæði undir flísefnið.
    • Auðveldar þér að taka eftir ef naggrísinn fær of mikið kalk: hvítir blettir myndast þar sem þeir pissa
  • Gallar:
    • Þarf að yfirborðs-hreinsa skítinn daglega
    • Þarft að nenna gera þvottinn reglulega
    • Ekki hægt að nota það eitt og sér: verður að nota annað undirlag með (t.d. handklæði)
    • Getur verið dýrt að byrja nota flísefni (þetta er fjárfesting)
    • Það þarf að for-meðhöndla flísefnið svo það hleypi vökva í gegnum sig.

Kattarsandur

Þú skalt ekki að nota kattarsand undir naggrísina þótt það sé rakadrægt. Það er mikið ryk í því og önnur aukaefni sem eru skaðleg heilsu naggrísanna.

  • Gallar:
    • Kattasandur er yfirleitt úr efnum sem eru hættuleg fyrir naggrísi ef þeir t.d. freistast til að borða það
    • Oft mikið af ryki og efnum sem fara illa í öndunarfærin á þeim

Léleg undirlög

Þau ættu helst að vera notuð sem tímabundin undirlög sem skipta þarf daglega eða oftar

Dagblöð

Hey

Þú ættir helst ekki að nota hey sem undirlag og alls ekki nota strá vegna þess þau eru oddkvöss og geta meitt naggrísinn þinn alvarlega. Heyið mun því ekki drekka í sig hlandið og þarf að skipta því út daglega. Það hentar þó ágætlega ofan á sagi til að halda því á sínum stað, en þarf samt að skipta því út daglega þar sem naggrísirnir pissa.

Ef þú ert að pæla í að setja hey í húsin/svefnstaðina, hafðu þá í huga: naggrísir eru ekki hamstrar. Þeir eru ekki að fara gera sér bæli til að sofa á, bara leggjast niður og hey er ekkert sérstaklega mjúkt. Svo eru stráin sem leynast stundum í því oddkvöss og geta stungist í t.d. augun á þeim.

  • Kostir:
    • Ódýrt
  •  Gallar:
    • ekki rakadrækt
    • Myglar auðveldlega
    • Þarf að skipta út daglega
    • Ryk í heyinu þegar það molnar niður
    • Strá geta slasað naggrísinn, stungist í augun á þeim og fleirra eins og lítil spjót

Strá

Prenta/export
QR Kóði
QR Code undirlag (generated for current page)