Ég er ennþá að vinna í því að setja inn myndirnar, þegar allt er komið þá spái ég í útlitinu.

Naggrísa skítur

Það er þekkt fyrirbæri að naggrísir eru litlar verksmiðjur með frekar stöðuga framleiðslu á litlum skítakögglum.

Þess vegna er mikilvægt að taka eftir ef eitthvað kemur upp á þessa framleiðslu, hvort það sé óvenjulegt útlit eða lítil/engin framleiðsla.

Tegundir Skítaköggla

Lítill og Þurr skítur

Þurr skýtur

Ef þeir koma þannig út úr þeim, þá er það er merki um ofþornun, og naggrísinn ætti að vera að drekka mikið meira vatn.

  • Naggrísir ættu að drekka um 10% líkamsþyngdar sinnar af vatni daglega, og endast bara í sólarhring án vatns.

Dropalaga skítur

Þurr skýtur

Dropalaga skítur getur verið merki um meltingartruflanir, að það sé eitthvað í gangi í görnunum á þeim.

  • Naggrísinn gæti mögulega verið að fá of lítið af trefjum og heyji í mataræðinu

Klumpa skítur

Þurr skýtur

Þetta getur verið merki um vandamál í görnum eða slakir endaþarms vöðvar á eldri naggrísum

  • Ef naggrísinn er að upplifa hægðartregðu, þá gætir þú tekið eftir að þeim þykir erfitt að skíta eða hegða sér eins og þeir væru að skíta en ekkert kemur út
  • Vertu viss um að þeir hafi nóg vatn og hey
  • Forðist að gefa naggrísnum korn (fræ, brauð, kornvörur)

Grænn skítur

Þurr skýtur

Þeir eru eins og venjulegir skítakögglar, en þeir eru mýkri og með grænum tón.

  • Þetta er hin tegundin af venjulegum og heilbrigðum naggrísaskít sem maður sér sjaldan því þeir borða hann strax
  • Þessa köggla borða þeir aftur til að melta betur matinn og fá meiri næringu

Lyktandi klessulegur skítur

Þurr skýtur

Lyktandi og/eða blautur skítur gæti bent á næringarleg eða matartengd vandamál, eða í versta falli niðurgangi

  • Venjulega er engin áberandi lykt af skítnum þeirra (nema hann verði blautur kannski)
  • Ef þeir borða mikið af vatnsmiklu grænmeti/ávöxtum, þá getur það gert skítinn þeirra blautari
  • Niðurgangur er stórhættulegur fyrir naggrísi, það getur haft fylgikvilla eins og þreytu, ofþornun, litla/enga matarlyst og mögulega lægri líkamshita
    • Ef um niðurgang er að ræða, þá skal strax koma því í lag, læknisferð ef þig vantar hjálp.

Rauður / Blóðugur skítur

Þurr skýtur

Farðu til dýralæknis strax með naggrísinn

  • Það gæti verið eitthvað að í meltingarkerfinu þeirra eða sár hjá endaþarmsopinu

Heilbrigður / Venjulegur skítur

Þurr skýtur

Heilbrigður naggrísas kúkur er yfirleitt meðal til dökk brúnn á litinn (einhverstaðar á milli brúnt og svart).

  • Kögglarnir eru þá af mjög stöðugri stærð með bogna lögun (sem er meira áberandi á lengri kögglum)
  • Þessir kögglar ættu ekki að brotna/molna niður ef naggrísinn stígur á þá
  • kögglarnir ættu ekki að vera þurrir, sérstaklega ekki ef þeir eru nýlegir.
  • Það er í raun engin sérstök lykt af heilbrigðum naggrísaskít

piggy-poop-factory.jpg

Fleirra

Heimildir

Prenta/export
QR Kóði
QR Code skitur (generated for current page)