Efnisyfirlit
Naggrísa skítur
Það er þekkt fyrirbæri að naggrísir eru litlar verksmiðjur með frekar stöðuga framleiðslu á litlum skítakögglum.
Þess vegna er mikilvægt að taka eftir ef eitthvað kemur upp á þessa framleiðslu, hvort það sé óvenjulegt útlit eða lítil/engin framleiðsla.
Tegundir Skítaköggla
Lítill og Þurr skítur
Ef þeir koma þannig út úr þeim, þá er það er merki um ofþornun, og naggrísinn ætti að vera að drekka mikið meira vatn.
- Naggrísir ættu að drekka um 10% líkamsþyngdar sinnar af vatni daglega, og endast bara í sólarhring án vatns.
Dropalaga skítur
Dropalaga skítur getur verið merki um meltingartruflanir, að það sé eitthvað í gangi í görnunum á þeim.
- Naggrísinn gæti mögulega verið að fá of lítið af trefjum og heyji í mataræðinu
Klumpa skítur
Þetta getur verið merki um vandamál í görnum eða slakir endaþarms vöðvar á eldri naggrísum
- Ef naggrísinn er að upplifa hægðartregðu, þá gætir þú tekið eftir að þeim þykir erfitt að skíta eða hegða sér eins og þeir væru að skíta en ekkert kemur út
- Vertu viss um að þeir hafi nóg vatn og hey
- Forðist að gefa naggrísnum korn (fræ, brauð, kornvörur)
Grænn skítur
Þeir eru eins og venjulegir skítakögglar, en þeir eru mýkri og með grænum tón.
- Þetta er hin tegundin af venjulegum og heilbrigðum naggrísaskít sem maður sér sjaldan því þeir borða hann strax
- Þessa köggla borða þeir aftur til að melta betur matinn og fá meiri næringu
Lyktandi klessulegur skítur
Lyktandi og/eða blautur skítur gæti bent á næringarleg eða matartengd vandamál, eða í versta falli niðurgangi
- Venjulega er engin áberandi lykt af skítnum þeirra (nema hann verði blautur kannski)
- Ef þeir borða mikið af vatnsmiklu grænmeti/ávöxtum, þá getur það gert skítinn þeirra blautari
- Niðurgangur er stórhættulegur fyrir naggrísi, það getur haft fylgikvilla eins og þreytu, ofþornun, litla/enga matarlyst og mögulega lægri líkamshita
- Ef um niðurgang er að ræða, þá skal strax koma því í lag, læknisferð ef þig vantar hjálp.
Rauður / Blóðugur skítur
Farðu til dýralæknis strax með naggrísinn
- Það gæti verið eitthvað að í meltingarkerfinu þeirra eða sár hjá endaþarmsopinu
Heilbrigður / Venjulegur skítur
Heilbrigður naggrísas kúkur er yfirleitt meðal til dökk brúnn á litinn (einhverstaðar á milli brúnt og svart).
- Kögglarnir eru þá af mjög stöðugri stærð með bogna lögun (sem er meira áberandi á lengri kögglum)
- Þessir kögglar ættu ekki að brotna/molna niður ef naggrísinn stígur á þá
- kögglarnir ættu ekki að vera þurrir, sérstaklega ekki ef þeir eru nýlegir.
- Það er í raun engin sérstök lykt af heilbrigðum naggrísaskít