Ég er ennþá að vinna í því að setja inn myndirnar, þegar allt er komið þá spái ég í útlitinu.

Allar upplýsingar á þessari síðu koma frá Guinea Lynx sem er góð upplýsingagátt, svo ítarlegar um allt tengt heilsu naggrísa að jafnvel dýralæknar nýta sér hana.

Ég ætla ekki að vera þýða mikið af því efni, en ætla reyna fara yfir það algengasta eða þýða hvað hlutinir kallast á íslensku (uppfært þegar ég læri nýja hluti)


Fótasár (Pododermatitis/Bumblefoot)

Ulcerative pododermatitis, þekkt sem „bumblefoot“ á ensku, er sársaukafull sýking undir fótum. Ilin er bólgin og stundum með opið sár. Í mjög alvarlegum tilfellum þá vill naggrísinn ekki hreyfa sig, verður þunglyndur og horaður. Ef sýkingin nær inn að beini þá þarf líklega að fjarlægja fótinn. Ef ekkert er gert í málunum þá getur þetta valdið dauða.

  • Hvað veldur þessu?
    • Algengustu ástæðurnar eru gólf gerð úr víra-neti eða gróft/hart undirlag sem leyfir sýkingum (oftast Staphylococcus aureus, algeng baktería) að ná rótum. Lélegt hreinlæti, blautt undirlag, lítil hreyfing og offita geta verið orsakir. Best er að fyrirbyggja gegn þessu með því að forðast slíkar aðstæður.
  • Meðferð/Lækning
    • Það getur verið mjög erfitt að lækna þetta. Þú skalt skoða naggrísinn þinn reglulega til að grípa svona vandamál snemma svo dýralæknir geti gefið greiningu og meðferð.

Ástand: Hægðartregða? (Impaction) - tengist karldýrum

Eldri karldýr geta þróað með sér svokallaða hægðartregðu (impaction). Naggrísir eru með sérstakan „endaþarms-poka“ (perineal sac) sem safnar saman mjúkum hægðum (Cecal pellets). Þegar vöðvarnir í endaþarminum verða slakir og geta ekki lengur ýtt sjálfir út þessum sérstöku hægðum þá pakkast þær saman í þessum poka. Eigandinn verður þess vegna að aðstoða hann reglulega með því að tæma hann.

  • Hvernig er hægt að fyrirbyggja þessu?
    • Gott mataræði með mikið af heyi og stórt búr til að hreyfa sig í (með orku-miklum félaga) mun hjálpa við að halda karldýrinu þínu heilbrigðu. Ef undirlagið þitt (sag/pappírs-vörur) safnast saman í endaþarms-pokanum, þá gæti hjálpað að skipta yfir í flísefni.
    • Þú ættir að skoða endaþarms-opið á naggrísunum þínum reglulega (aldur skiptir ekki máli) vegna þess að drasl á það til að safnast saman þarna t.d. hey og sag. Hreinsið ef þarf.
  • Meðferð/hreinsun:
    • Gott er að nota eyrnapinna til að fjarlægja hægðirnar úr pokanum (þegar lítið er í honum) eða reyna opna endaþarms-pokann varlega til að ýta hægðunum út (þegar mikið er í) og síðan skola hann að innan með volgu vatni úr sprautu. Gott ráð er að smyrja pokann að innan með steinefna-olíu.
    • endilega skoðið aðrar nánari leiðbeiningar: Anal Impaction

Sýking í Öndunarfærum (URI/Upper Respiratory Infection)

Uppþemba (bloat)


Heimildir: Guinea Lynx

Prenta/export
QR Kóði
QR Code heilsa-kvillar (generated for current page)