This is an old revision of the document!
Efnisyfirlit
Ferskmeti: Hvað má ég gefa þeim?
Þessi síða er samansafn af upplýsingum um hvað naggrísir mega borða og næringargildi þess.
Flokkaður listi
Nánast daglega | Oft (2-4 á viku) | Stundum (1-2 á viku) | Sjaldan (1-2 á mánuði) |
- Nánast daglega er vegna þess að þú ættir að vera gefa þeim úrval af grænmeti svo þeir fái fjölbreyttari næringu.
- Endilega skoðið nánari næringargildi á listunum neðar á síðunni. Ef þú kynnir þér næringuna í grænmetinu þá getur þú stuðlað að því að þeir fái það magn sem þeir þurfa án þess að þurfa gefa þeim C-vítamín í t.d. töflum eða dropum.
- Passa samt upp á jafnvægið á magni C-vítamíns og Kalks í hverju grænmeti fyrir sig.
Hér er góð "reiknivél" (Excel skjal) frá Guinea Lynx til að reikna hlutföllin - ATH: Ávextir ættu að vera notað sem nammi. Það er að segja t.d 1-2 í viku í smáum skömmtum eins og 1/8 af epli, 1/4 af kíví, 1/8 af appelsínu, 1-2 vínber, 1 jarðarber, o.s.frv.
- Þessar töflur hér fyrir neðan eru byggðar á upplýsingar frá Cavy Nutrition Charts
Grænmeti
Grænmeti | Ensk heiti | Athugasemdir |
Endive, Belgískt/Jólasalat | Endive, Belgian/Witloof | |
Endive, Lausblaða/Frisse | Endive/Chicory, Curly | |
Endive, Rautt/Ítalskt Chicory | Radicchio | |
Gulrætur, litlar | Carrots, baby | 1 biti daglega fyrir hvern grís er í lagi |
Kúrbítur, með hýði | Zucchini, with skin | |
Papríka, græn | Peppers, bell, green | |
Papríka, gul | Peppers, bell, yellow | |
Salat, Romaine | Lettuce, romaine/cos | |
Salat, Smjörsalat | Lettuce, butterhead | |
Salat, lausblaða grænt | Lettuce, green leaf | |
Salat, lausblaða rautt | Lettuce, red leaf | |
Sætar kartöflur, laufblöðin | Sweet Potato leaves | |
Tómatar, kirsuberja | Tomatoes, cherry | 1-2 daglega á hvern grís er í lagi |
Agúrka, með hýði | Cucumber, with peel | |
Baunir, strengja | Beans, snap, green | Gefið aðeins hverjum grís 1-2 belgi |
Baunir, í belg | Peas, edible-podded | 1-2 belgir á hvern grís |
Blöðrukál | Cabbage, Savoy | Veldur gasi, gefið sparlega |
Grasker, sumars | Squash, summer, all | |
Grasker, vetrar | Squash, winter, all | |
Hvítkál | Cabbage, green | Veldur gasi, gefið sparlega |
Jam-rótarhnúður | Yam | |
Karsi | Gardencress | |
Klettasalat | Arugula/Rucola | |
Papríka, rauð | Peppers, bell, red | Hátt sykurmagn |
Rauðkál | Cabbage, red | Veldur gasi, gefið sparlega |
Sellerí | Celery | Skerið í bita og fjarlægjið strengi |
Spergilkál, laufblöðin | Broccoli leaves | Mjög hátt magn af A vítamíni, gefið sparlega |
Tómatar, rauðir/þroskaðir | Tomatoes, red, ripe | |
Ætiþistill | Artichoke | |
Aspas | Asparagus | |
Blaðbeðja, hvít/silfur | Chard, Swiss (Silverbeet) | Mjög hátt magn af Oxalsýru |
Blaðkál/Salatkál | Collard Greens | Mjög hátt magn af Kalki, A- og Oxalsýru, gefið aðeins í litlu magni |
Blómkál | Cauliflower | Veldur gasi, gefið sparlega |
Grasker, hrátt | Pumpkin, raw | Ekki gefa þeim fræin |
Grænkál | Kale | Mjög hátt magn af A vítamíni, gefið sparlega |
Kínakál | Cabbage, pak-choi | Veldur gasi, gefið sparlega |
Maís, heill | Corn on the cob | Hýðið af því má gefa þeim daglega |
Nýpa, laufblöðin | Turnip greens | |
Nýpur | Turnips | Hátt magn af sykri og Oxalsýru |
Rauðbeður/Rauðrófur | Beets | |
Rósakál | Brussels Sprouts | Veldur gasi, gefið sparlega |
Sinnepskál | Mustard greens | |
Spergilkál | Broccoli | Veldur gasi, gefið sparlega |
Spínat | Spinach | Mjög hátt magn af A vítamíni og Oxalsýru |
Vatnakarsi | Watercress | |
Radísur, mildar | Radishes, mild | Hátt magn af Oxalsýru |
Rauðbeðurs-blöð | Beet Greens (leaves) | Hátt magn af Kalki, A vítamíni og Oxalsýru |
Sæt kartafla /Sætuhnúður | Sweet Potato | Hátt magn af sykri, A vítamíni og Oxalsýru |
Ávextir
Ávöxtur | Ensk heiti | Athugasemdir |
Hindber | Raspberries | |
Jarðarber | Strawberries | |
Stikilsber | Gooseberries | Fínt í smáum skömmtum |
Crabapple/Wild apple | ||
Appelsínubörkur | Orange peel | |
Bláber | Blueberries | |
Brómber | Blackberries | |
Kirsuber, sæt | Cherries, sweet | Fjarlægjið steininn fyrst |
Trönuber, fersk | Cranberries | |
Vínber | Grapes | Rauð eða Græn, án fræja |
Ananas, ferskur | Pineapple, raw | Hátt sykurmagn |
Appelsínur | Oranges | Hátt sykurmagn |
Apríkósa | Apricot | |
Epli, með hýði | Apples, with skin | Mjög hátt sykurmagn |
Ferskja | Peach | Hátt sykurmagn |
Fíkjur, ferskar (1stk) | Figs, raw | Mjög hátt sykurmagn |
Kíví | Kiwifruit | Hátt sykurmagn |
Mangó | Mango | Mjög hátt sykurmagn |
Melóna, Hunangs | Melon, Honeydew | Hátt sykurmagn |
Melóna, Kantalópa | Melon, Cantaloupe | Hátt sykurmagn |
Melóna, Vatns | Watermelon | Skinnið er ætilegt |
Pera | Pear | Hátt sykurmagn |
Pera, Austurlensk | Pear, Asian | Hátt sykurmagn |
Plóma | Plum | Hátt sykurmagn |
Sólaldin | Papaya | |
Banani | Banana | Veldur hægðartregðu (ekki ástandið), Gefið í mjög litlu magni |
- Grænmeti/Ávextir sem þú ættir að hafa í huga, hvort sem það er á listanum eða ekki.
- Jöklasalat/Iceberg: Vegna þess hversu næringarlítið það er miðað við magn þá er ekki ráðlegt að gefa naggrísunum það. Í miklu magni getur það valdið mjúkum/blautum hægðum og næringarskorti
- Forðist/Takmarkið allt kál (Brassica) í mataræðinu. Það getur valdið gasi („bloat“) og inniheldur oft mikið af kalki
- EKKI gefa naggrísum lauk eða neitt sem vex upp af lauk (t.d. graslaukur, páskaliljur, túlípanar)
- Fjarlægjið alla ávaxtasteina vegna þess að flestir innihalda Cyanide-eitur í einhverju magni.
- Ekki vera gefa naggrísum ávexti eða grænmeti sem eru þurrkuð, elduð eða niðursoðin, það hefur ekki þá næringu sem þeir þurfa og innihalda yfirleitt viðbætt efni (t.d. sykur og rotvarnarefni)
Krydd og aðrar jurtir
Jurt | Ensk heiti | Athugasemdir - ▾ |
Kóríander | Cilantro | |
Steinselja | Parsley | |
Túnfífill, laufblöðin | Dandelion greens | Blómin og rætur eru einnig ætar |
Basilíka | Basil | |
Garðablóðberg/Timjan | Thyme | |
Sólselja | Dill |
Nánari upplýsingar um næringargildi
Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar um næringargildi á helsta grænmetinu og ávöxtum sem eru í boði, töflunar fann ég á ensku á Guinea Lynx. Endilega skoðið þá síðu, hún er full af ítarlegum upplýsingum um heilsu naggrísa
C-vítamín
C vítamín (eða „Askorbínsýra) er vatnsleysanlegt og brotnar fljótt niður svo grænmeti og ávextir innihalda minna magn en taflan sýnir eftir því sem líður frá uppskeru.
Naggrísir framleiða ekki eigið C vítamín, alveg eins og við, og þurfa þess vegna að fá það í gegnum matinn. Skortur á C vítamíni getur haft alvarlegar afleiðingar og getur þróast hratt (á nokkrum vikum).
Naggrísir sem eru ungir, veikir, óléttir eða nýbúnir að eignast unga þurfa auka skammt af C-vítamíni.
Magn af C-vítamín í 100gr skömmtum af Grænmeti
|
|
Kalk (Calcium)
Kalk er mikilvægt góðri heilsu. En sumir naggrísir eru líklegir til þess að fá nýrnasteina og gagnast að því að vera á kalk-litlu mataræði. Ef naggrísinn er að fá of mikið kalk úr mataræðinu þá mun hlandið á þeim verða hvítt, sem skilur eftir sig áberandi kalk-bletti ef þú ert að nota flísefni sem yfirlag í búrinu.
Magn af kalki í 100gr skömmtum - Grænmeti
|
|
Oxalsýra
Í miklu magni getur hún verið haft slæm áhrif á nýrun þar sem hún bindur sig við kalk og myndar þannig nýrnasteina. Hún getur einnig valdið sársauka í liðamótum af svipuðum ástæðum.
Oxalsýra í 100gr skömmtum - Grænmeti
|
Heimildir: Guinea Lynx - Cavy Nutrition Charts