Ég er ennþá að vinna í því að setja inn myndirnar, þegar allt er komið þá spái ég í útlitinu.

Meðhöndlun og fyrirbygging hægðatregðu (impaction)

Kynfærin og bakpokinn (perinal sac) er svæði sem þú þarft að fylgjast vel með, sérstaklega þegar þú ert með karlkyns naggrís. Þú ættir alltaf að skoða þau þarna reglulega til að vera viss um að allt sé hreint og heilbrigt.

Ef þú skoðar raufina á kynfærunum (beint fyrir neðan tippið/snípinn) og togar hana varlega í sundur, þá sérðu pokann (perinal sac) og er í raun 95% af svæðinu, þakið klístruðu efni sem tveir litlir kirtlar framleiða, síðan er endaþarmurinn lítið op sem úr kemur bæði sérstakir mýkri kögglar (caecal pellets) og venjulegir skíta-kögglar. Pokinn á að grípa þessa mýkri köggla svo naggrísinn getur borðað þá þegar þeim hentar, á meðan þeir stífari fara beint út.

Hægðartregða (impaction) er líkamlegt ástand sem karldýrin geta þróað með sér þegar þeir verða eldri, kvenndýr og yngri karlar eru ólíkleg til þess að lenda í því vegna þess að pokinn þeirra er miklu minni. Það sem gerist er að vöðvarnir í kringum endaþarmsopið verða slakir og eiga erfiðara með að ýta út þessum sérstöku mýkri skíta-kögglum sem naggrísir venjulega borða aftur, þeir þjappast saman þarna í pokanum og eigandinn þarf þá að aðstoða hann með því að tæma úr pokanum reglulega og þrífa.

Stórt búr og næg hreyfing er góð til að fyrirbyggja gegn þessari hægðartregðu og halda karlinum þínum heilbrigðum og ánægðum. Jafnvel að hafa orkumikinn félaga í búri sem ýtir undir þá nausynlegu hreyfingu hjálpar mjög mikið. Samt eiga heilbrigðir karlar það til að safna kuski í þennan poka einhvernveginn, t.d. hey, sag og hár, þú vilt fjarlægja draslið sem safnast í þessum poka eftir þörfum og fylgjast með því að þeir séu heilbrigðir.

  • Þrífa pokann vegna hægðatregðu (impaction)
    1. Byrjaðu á því að fjarlægja allan skít sem hefur safnast saman í pokanum með eyrnapinna. Ef það er mikið í pokanum þá er oft hægt að ýta því mjög varlega út.
    2. Skolaðu síðan pokann að innan með volgu vatni úr sprautu
    3. Gott er að smyrja síðan pokann með steinefna olíu (mineral-oil) svo skíturinn safnist ekki jafn fljótt aftur fyrir í honum.
    4. Athugaðu pokann daglega hvort þurfi að tæma úr honum
  • Hvernig er hægt að fyrirbyggja gegn hægðartregðu?
    • Gott mataræði með mikið af trefjum
    • Nóga hreyfingu og stórt búr er mikilvægt svo naggrísinn geti hreyft sig eftir eigin dagsskrá.
    • Orkumikill félagi getur ýtt undir að naggrísinn hreyfi sig meira
    • Skoða á þeim endaþarmsopið reglulega og fjarlægja drasl sem gæti mögulega komist í hann (t.d. hey, sag og hár) ef svo þarf.
    • Ef naggrísinn er að safna of mikið af drasli í pokanum sínum (einnota undirlag), þá getur það hjálpað ef þú skiptir yfir í flísefni.

Hægðartregða (impaction) er eftir allt saman vegna þess að vöðvarnir verða slakir, þess vegna er mikilvægt að naggrísinn fái að halda sér í góðu formi með nægri hreyfingu.

Fleirra

Heimildir

Prenta/export
QR Kóði
QR Code impaction (generated for current page)