Efnisyfirlit

Flísefni

Flísefni er mjög vinsælt sem „yfirlag“ sem aðskilur naggrísina frá undirlaginu og heldur þeim þurrum og hreinum.

Ef þú ert til í að sjá almennilega um flísefnið þitt, þá skaltu endilega halda áfram að lesa


Hvernig flísefni skal ég nota?

Það eru til margar týpur af flísefni og henta misvel í búrið (kallast á ensku „polar fleece“). Ef það hleypir ekki vökva í gegnum sig eftir síendurtekna for-meðhöndlun þá er það ónothæft.

For-meðhöndlun flísefnis

Flísefni eru venjulega vatns-fráhrindandi þegar þú færð það í hendurnar og myndar þess vegna polla ofan. Til þess að flísefnið fái þá eiginleika sem við viljum svo það sé nothæft í búrið þá þarf að for-meðhöndla flísefnið. Efnið mun skreppa örlítið saman í þvottinum, þess vegna er best að formehöndla áður en þú byrjar einhver saumaverkefni.

  1. Setjið flísefnið í þvottavélina á suðuþvott (95°) með slatta af edik (og/eða þvottadufti t.d. Neutral)
    • Hægt er að nota þvottaduft sem inniheldur engin ylmefni (t.d Neutral) sem gert er fyrir viðkvæma húð
    • Ég set það venjulega á langt þvotta-prógram og forþvott
    • Ekki nota mýkingarefni, það vinnur gegn þér (gerir efnið vatnsfráhrindandi aftur)
  2. Þurrkið það síðan þegar vélin er búin, á snúru eða í þurrkara.
    • Flísefni er mjög fljótt að þorna þegar búið er að kreista allt vatn úr því.
    • Ef þú setur í þurrkarann, þá má það bara vera í stutta stund
    • EKKI bæta neinu í þurrkarann sem mýkir þvottinn, eins og þurrku-blöð)
  3. Gerið síðan tilraun til að sjá hvort flísefnið sé byrjað að hleypa vökva í gegnum sig: hellið smá vatni á flísefnið
    • gott er að hafa handklæði undir því til að taka við vökvanum
    • ef vökvinn myndar poll ofan á flísefninu þá er það ekki tilbúið
  4. Þetta ferli þarf að endurtaka að minnsta kosti 3-5 sinnum áður en það fer að virka
    • Það sem þú ert að gera með þessari formeðhöndlun er að skola í burtu vatns-fráhrindandi efnunum sem eru í flísefninu
    • Ef þú notar mýkingarefni í þvottinum þá mun flísefnið verða vatns-fráhrindandi aftur
    • Ef flísefnið sigtar ekki vökva í gegnum sig eftir síendurtekna formeðhöndlun, þá er það ónothæft sem yfirlag.

Oftast er krafturinn í bununni nóg til að pota í efnið til að fá það til að hleypa vökvanum í gegnum sig. Stundum þarf nefnilega bara að pota í efnið til að það byrji að sigta, en þú vilt samt ekki að efnið sé tregt vegna þess að þá er naggrísinn líklegri til að sitja í pollinum eða labba í honum áður en vökvinn fer loksins í undirlagið. Annað ráð sem getur hjálpað að gera efnið áreiðanlegra er að hafa það ágætlega stregt, stregt efni sigtar betur.


Hvernig skal ég nota flísefni í búrinu?

Invalid Link
Flísefni fest með bréfaklemmum

Þú þarft að hafa rakadrægt undirlag til að hafa undir flísefninu, gott er að nota handklæði vegna þess að það getur þá farið í þvottavélina með flísefninu. Síðan getur þú klippt og saumað flísefnið til að passa fullkomlega í búrið þitt. Það er hægt að búa til einskonar „fleece flippers“ sem virka mjög skemmtilega í stærri búrum og  heldur flísefninu strektu svo hægt er að ryksuga það

  1. Vertu með hreinan búr-botn.
    • Ef það eru komnir kalk/hland-steinar í botninn þá er hægt að leggja það í bleyti ofan í edik, það leysir upp skánina og búrið verður eins og nýtt.
  2. Settu rakadrægt undirlag í botninn
    • Ekki nota sag-spænir, þær festast í flísefninu auðveldlega og er leiðinlegt að losa úr
    • Hægt er að nota sag-köggla
    • Best er að nota handklæði eða annað rakadrægt teppi. Brjóttu það saman svo það passi vel í botninn
  3. Settu flísefnið ofan á undirlagið þannig að naggrísirnir geti ekki komist undir það
    • Best er að hafa nógu stórt flísefni sem fer þá yfir kantinn á búrinu, þá er auðvelt að festa það
    • Þæginlegt er að festa flísefnið með bréfaklemmum (foldback-clips)
    • Vertu viss um að flísefnið er slétt og snertir undirlagið allstaðar, þá virkar það best. Ekki láta það hanga í lausu lofti

Hvernig ætti ég að þrífa flísefnið?

Skoðið Hreingerningar um hvernig ég þríf búrið hjá mér, og önnur ráð.


Heimildir: Is fleece right for me? - Cali Cavy Collective: fleece 101 -The Fleece Project: The study