====== Sníkjudýr ====== ===== Flösumaur / Naggrísalús, Running-lice ===== Flösumaurinn er eitt algengasta snýkjudýrið sem finnst á naggrísum, sérstaklega ef þeir koma úr dýrabúð eða frá ræktanda. **En hafðu í huga að naggrísinn getur verið nánast einkennalaus** ef lúsin er ekki að yfirtaka hann svo það er mikilvægt að skoða þá mjög vel. * Þeir eru þekktir hérlendis sem "//flösu-maur//" vegna þess að þeir minna helst á flösu, sérstaklega eggin þeirra. * Á ensku eru þeir kallaðir "//Running Lice//" (hlaupa-lús) vegna þess hreyfa sig mikið. * Þeir eru sérhæfðir til að lifa eingöngu á naggrísum svo það er engin hætta á því að þeir smitist á mannfólk. * Þeir drekka ekki blóð, svo lyf sem naggrísinn fær munnlega virka ekki á þá * **Smitleiðir:** * Bein snerting við smitaðann naggrís * Snerting við undirlag/yfirborð/leikföng sem smitaður naggrís hefur verið í snertingu við * Frá manneskju sem var að meðhöndla smitaðann naggrís og fengið eggin/lúsina í fötin Venjulega er einföld meðferð alveg nóg ef þú sótthreinsar búrið og dótið þeirra vel svo lúsin geti ekki hoppað aftur á naggrísinn að meðferðinni lokið. Ef endurtaka þarf meðferðina, þá er það venjulega gert 4 vikum síðar. Meðferðin sjálf er mjög einföld og eru nokkrir dropar af //Selametchin// á hnakkan á þeim/bak við eyrun. Dót sem erfitt er að sótthreinsa er einfaldlega hægt að henda í frystirinn. [[hlaupa-lus|Lesið nánar um flösumaurinn og meðferð]] ===== Kláðamaur, Mange mites (Trixacarus caviae) ===== Þessi pest sést ekki með berum augum og grefur sig inn í húðina á naggrísnum sem veldur þeim miklum sársauka. Þú gætir tekið eftir því að naggrísinn klóri sér mikið og fær skallabletti, í alvarlegum tilfellum getur naggrísinn fengið krampa og jafnvel dáið ef ekki meðhöndlað. **Ef einn naggrísinn hefur kláðamaur, þá skaltu gera ráð fyrir að allur hópurinn hafi það**, jafnvel ef hinir sýna engin einkenni. Naggrísir geta verið einkennalausir og samt verið með kláðamaur í sér, maurinn getur nefnilega legið í dvala í marga mánuði eða ár. Mikið stress, veikindi eða þungun getur valdið því að maurarnir blossi upp. **Þessi kláðamaur lifir og fjölgar sér eingöngu á naggrísum** og þess vegna er engin hætta á því að þeir smitist yfir á mannfólk. En viðkvæmt fólk gæti samt fundið fyrir tímabundnum kláða. Algengt er að nota //ivermectin// gegn þessu sníkjudýri í sprautu, munnlega eða á skinnið (þá á bakvið eyrun). **Það þarf að endurtaka meðferðina gegn kláðamaurnum tvisvar eða oftar á 7-10 daga fresti vegna þess að lyfið drepur ekki eggin.** Mjög mikilvægt er að skammta lyfjunum rétt til þess að forðast aukaverkanir og jafnvel dauða af völdum lyfjanna. Dýralæknirinn gæti viljað setja lyfið í opin sár, hrúður eða önnur sýnileg einkenni af völdum kláðamaursins. Dauði af völdum kláðamaurs er útfrá vökvaskorts vegna mikilla sára og átröskunnar vegna sársauka og óþæginda. ---- Heimildir: [[http://www.guinealynx.info/quarantine.html|Quarantine]], [[http://www.guinealynx.info/parasites.html|Parasites]]