====== Flísefni ====== Flísefni er mjög vinsælt sem "yfirlag" sem aðskilur naggrísina frá undirlaginu og heldur þeim þurrum og hreinum. * Kostir * **Öruggt í notkun:** flísefnið ertir ekki viðkvæm augu naggrísa, skinn og öndunarfæri * **Fjölnota**: bara skella því í þvottinn reglulega. Hægt að nota fjölnota undirlag eins og handklæði með því * **Getur litið vel út**: flísefni getur verið mjög fjölbreytt á litinn og munstrað * **Sparar þér pening**: ef þú hættir að eyða í einnota undirlög þá getur þú sparað pening * **Yfirborðið helst þurrt**: þegar það er for-meðhöndlað rétt þá sigtar það vökva í gegnum sig, rakadrægt undirlag drekkur það í sig og naggrísirnir haldast þurrir og hreinir * **Passar auðveldlega í búrið**: hægt er að sauma og klippa flísefnið til að passa vel í búrið hjá þér. * Gallar * **Þarft að for-meðhöndla flísefnið** á réttan hátt áður en þú getur notað það * **Verður að nota það með öðru rakadrægu undirlagi**: flísefnið sigtar bara vökva, það verður blautt ef vökvinn kemst ekkert. * **Verður að yfirborðs-þrífa flísefnið daglega**: taka upp skítinn með t.d. fægiskóflu * **Verður að nenna setja það í þvottavélina reglulega:** aðgangur að þvottavél nauðsynlegur, þurkarar eru þæginlegir * **Möguleg þörf á aukalegri meðferð til að fjarlægja hárin** * **Getur verið dýrt að byrja nota flísefni**: þetta er fjárfesting Ef þú ert til í að sjá almennilega um flísefnið þitt, þá skaltu endilega halda áfram að lesa ---- ==== Hvernig flísefni skal ég nota? ==== Það eru til margar týpur af flísefni og henta misvel í búrið (kallast á ensku "polar fleece"). Ef það hleypir ekki vökva í gegnum sig eftir síendurtekna for-meðhöndlun þá er það ónothæft. * **100% polyester** * forðist "Glacier fleece" eða ullar-blöndur: þau munu bara drekka í sig vöka í stað þess að sigta hann í gegn * Þú vilt //anti-pill flísefni//, betri gæði. (það stendur sjaldnast á umbúðunum, þarft bara meta gæði efnisins) * **"Pilling"** eins og það kallast á ensku er þegar efnið býr til litlar kúlur á yfirborðinu eftir hvern þvott vegna þess hvernig það er uppbyggt, lélegri flísefni. Þetta flýtir fyrir þynningu efnis og styttir endingu þess. **"Anti-pill"** eru betri gæði af flísefni, það er uppbyggt til þess að haldast betur saman og er ólíklegri til að mynda svona efnis-kúlur á yfirborðinu, og þess vegna endist það betur í gegnum síendurtekinn þvott. * Hvar finn ég flísefni? * **Sem rúmteppi eða ábreiður** í búðum eins og [[http://rumfatalagerinn.is/|Rúmfatalagerinn]] eða [[http://www.ikea.is/|Ikea]] * **Í metratali í vefnaðar-búðum** eins og [[http://virka.is/|Virka]] eða [[http://www.fondra.is/|Föndra]] * **Notuð/gömul flísteppi** í búðum eins og [[http://www.sorpa.is/thjonusta/starfsstodvar/godi-hirdirinn|Góði hirðirinn]] eða [[http://basarinn.is/|Basarinn]] ==== For-meðhöndlun flísefnis ==== Flísefni eru venjulega vatns-fráhrindandi þegar þú færð það í hendurnar og myndar þess vegna polla ofan. Til þess að flísefnið fái þá eiginleika sem við viljum svo það sé nothæft í búrið þá þarf að for-meðhöndla flísefnið. **Efnið mun skreppa örlítið saman í þvottinum**, þess vegna er best að formehöndla áður en þú byrjar einhver saumaverkefni. - Setjið flísefnið í þvottavélina á suðuþvott (95°) með slatta af edik //(og/eða þvottadufti t.d. Neutral)// * Hægt er að nota þvottaduft sem inniheldur engin ylmefni (t.d Neutral) sem gert er fyrir viðkvæma húð * Ég set það venjulega á langt þvotta-prógram og forþvott * **Ekki nota mýkingarefni**, það vinnur gegn þér (gerir efnið vatnsfráhrindandi aftur) - Þurrkið það síðan þegar vélin er búin, á snúru eða í þurrkara. * Flísefni er mjög fljótt að þorna þegar búið er að kreista allt vatn úr því. * Ef þú setur í þurrkarann, þá má það bara vera í stutta stund * EKKI bæta neinu í þurrkarann sem mýkir þvottinn, eins og þurrku-blöð) - Gerið síðan tilraun til að sjá hvort flísefnið sé byrjað að hleypa vökva í gegnum sig: hellið smá vatni á flísefnið * gott er að hafa handklæði undir því til að taka við vökvanum * ef vökvinn myndar poll ofan á flísefninu þá er það ekki tilbúið - **Þetta ferli þarf að endurtaka að minnsta kosti 3-5 sinnum áður en það fer að virka** * Það sem þú ert að gera með þessari formeðhöndlun er að skola í burtu vatns-fráhrindandi efnunum sem eru í flísefninu * Ef þú notar mýkingarefni í þvottinum þá mun flísefnið verða vatns-fráhrindandi aftur * Ef flísefnið sigtar ekki vökva í gegnum sig eftir síendurtekna formeðhöndlun, þá er það ónothæft sem yfirlag. Oftast er krafturinn í bununni nóg til að pota í efnið til að fá það til að hleypa vökvanum í gegnum sig. Stundum þarf nefnilega bara að pota í efnið til að það byrji að sigta, en þú vilt samt ekki að efnið sé tregt vegna þess að þá er naggrísinn líklegri til að sitja í pollinum eða labba í honum áður en vökvinn fer loksins í undirlagið. Annað ráð sem getur hjálpað að gera efnið áreiðanlegra er að hafa það ágætlega stregt, stregt efni sigtar betur. ---- ==== Hvernig skal ég nota flísefni í búrinu? ==== [{{ files:images:things:fleece-paperclips.jpg?300|Flísefni fest með bréfaklemmum}}] Þú þarft að hafa rakadrægt undirlag til að hafa undir flísefninu, gott er að nota handklæði vegna þess að það getur þá farið í þvottavélina með flísefninu. Síðan getur þú klippt og saumað flísefnið til að passa fullkomlega í búrið þitt. Það er hægt að búa til einskonar "[[http://www.guineapigmarket.com/about-fleece-flippers|fleece flippers]]" sem virka mjög skemmtilega í stærri búrum og  heldur flísefninu strektu svo hægt er að ryksuga það - Vertu með hreinan búr-botn. * Ef það eru komnir kalk/hland-steinar í botninn þá er hægt að leggja það í bleyti ofan í edik, það leysir upp skánina og búrið verður eins og nýtt. - Settu rakadrægt undirlag í botninn * Ekki nota sag-spænir, þær festast í flísefninu auðveldlega og er leiðinlegt að losa úr * Hægt er að nota sag-köggla * Best er að nota handklæði eða annað rakadrægt teppi. Brjóttu það saman svo það passi vel í botninn - Settu flísefnið ofan á undirlagið þannig að naggrísirnir geti ekki komist undir það * Best er að hafa nógu stórt flísefni sem fer þá yfir kantinn á búrinu, þá er auðvelt að festa það * Þæginlegt er að festa flísefnið með bréfaklemmum (foldback-clips) * Vertu viss um að flísefnið er slétt og snertir undirlagið allstaðar, þá virkar það best. Ekki láta það hanga í lausu lofti ==== Hvernig ætti ég að þrífa flísefnið? ==== Skoðið **[[hreingerning|Hreingerningar]]** um hvernig ég þríf búrið hjá mér, og önnur ráð. ---- Heimildir: [[http://www.guineapigmarket.com/fleece-right-for-me|Is fleece right for me?]] - [[http://www.calicavycollective.com/2014/03/guinea-pig-101-fleece-bedding-guide.html|Cali Cavy Collective: fleece 101]] -[[http://www.guineapigcages.com/forum/threads/21568-The-Fleece-Project-The-Study|The Fleece Project: The study]]